Fjallagullregn skarta sýnu fegursta þessa dagana. Það er svipmikið tré sem nýtur sín vel bæði í garðinum og við sumarbústaðinn. Krónan verður umfangsmikil og þarf því að ætla því talsvert pláss. Tréð blómstrar ekki fyrr en það er orðið 10-15 ára gamalt en biðin er vel þess virði. Í Kjarri eru til sölu fjallagullregn í ýmsum stærðum, þau elstu 10 ára.