Grenitrén/jólatrén vinsælu eru nú komin í potta. Þessi tré henta vel sem jólatré en hægt er að nota þau bæði innanhúss og utandyra. Fallega lýst tré við innganginn lífgar upp á tilveruna í skammdeginu. Svo má kippa trénu inn yfir jólahátíðina og loks planta því við sumarbústaðinn að vori eða jafnvel á þrettándanum ef jörð er ófrosin. Margir kjósa að kaupa sér jólatré með framhaldslíf en yfirleitt lifa trén af þó svo þau standi inni yfir jólahátíðina.

Upplýsingar í síma 846 9776 eða á kjarr@islandia.is